Gerði öðruvísi pizzu í kvöld, á annan helminginn fór bacon (að sjálfsögðu), camenbert og aspas, á hinn helminginn fór kjúklingur, basil-pestó, laukur, sveppir, maísbaunir og piparostur.
Ég setti bjór og hunang í deigið þannig að botninn varð stökkur og bragðmikill. Skellti extra þykku bacon-sneiðunum og kjúklingabringu í Fore-manninn.
Þegar allt áleggið var komið á þá var pizzan scary-þykk en verulega girnileg!
Bar fram með klettasalati og chilli-sultu og verulegu magni af hvítlauksolíu.
Gott stöff!
Einkunn: 8,5