Í Rúmeníu borða þeir beljumaga!

Árið 2004 fór ég ásamt tveimur öðrum Íslendingum og haug af Evrópu-búum í ferð á vegum ESB til Rúmeníu. Tilgangurinn var aðallega að byggja upp tómstundarúrræði fyrir götubörn (Roma-fólks) og kynna evrópska hugmyndafræði eins og samlyndi, virðingu, vináttu og fleira. Heimamenn tóku misvel í þetta. Ég lærði margt um manneskjuna og aðrar skepnur í þessari…

Afgangar

Ef það er eitthvað sem Nigella Lawson hefur kennt mér þá er það það að kunna að meta afganga. Í kvöld: Afgangur gærkvöldsins, ítalskar kjötbollur, ristað brauð með smjöri og osti og slettu af Dijon hunangs-sinnepi mmm. Hægt er að fylgjast með matardagbók Nigellu hérna: http://www.facebook.com/NigellaLawson

Ítalíanó mítaboló!

Ítalskar kjötbollur og heilveitipasta, that´s what´s cooking! Það er mjög auðvelt ef maður er latur að kaupa bara forsoðnar kjötbollur útí búð….en það er svindl, auk þess þá fær maður alltaf eitthvað ógeðis aukabragð sem ég þoli ekki. í kjötbollurnar notaði ég: UN-hakk, tvö egg, slatta af TUC-bacon kexi, hálfan pakka af púrrulauksúpudufti, afgang af…

Regnbogakaka

gastrogirl: rainbow layer cake. Alvöru metnaður í skúffukökugerð!

Pringles

ÉG væri til í að prófa bláberja og heslihnetu Pringles

Maísbaunir / gular baunir

Gular baunir fara vel með öllu. Gular baunir eru snæddar á himnum! Svo er hönnunin svo smart líka, klassískt, einfalt, bjútífúl!

Tagliatelle

Þetta borðaði ég í kvöld: Tagliatelle með piparosta-rjómasósu, brokkólí, bacon og kjúkling. Serverað með spínati, rucola, konfekt-tómötum og hvítlauks brauði…og auðvitað haugur af parmesan..mmm ostur. Einkunn: 8,0

Innblástur

Þessir fylgjast með mér í eldhúsinu. Þetta er allt spurning um balance.

Tortillur

Þetta brasaði ég í kvöld. Tortillur með osti, villisveppaosti, HoneyPecanBBQ sósu (fæst í Kosti), tvö harðsoðin egg, , steiktur laukur, hálfur tómatur og hvítlaukspipar, smellt í Foreman-inn í 6 mín. Serverað með sætum kartöflum (bökuðum í ofni) og léttmajó með dass af hunangsDijon sinnepi. Díliss! Einkunn 8,5