Hnetusmjörs M&M kökur…mmm!
Uppskrift:
125 gr smjör
110 gr sykur
120 gr púðursykur
1 egg
2 tsk vanillusykur
220 gr hveiti
0,5 tsk matarsódi
0,5 tsk lyftiduft
0,5 tsk salt
50 gr hakkaðar heslihnetur
Ca hálfur stór poki hnetusmjörs M&M
Aðferð:
Hræra saman sykri, púðursykri og smjöri. Bæta við egginu og blanda vel, setja þurrefnin eitt af öðru útí. Heslihnetur og M&M í restina, gerið litlar kúlur, baka í 15 mín við 190°c.
Einkunn: 8,5, gúrmei gúmmelaði!