Tók nýtt twist á M&M kökunum sem ég hef áður fjallað um. Muldi M&M-ið og bætti 80gr af brytjuðu rjómasúkkulaði útí. Skipti líka út sykrinum fyrir hrásykur. Svei mér þá við erum að nálgast fullkomnun:
Uppskrift:
125 gr smjör
135 gr hrásykur
100 gr púðursykur
1 egg
1 tsk vanilludropar
220 gr hveiti
0,5 tsk matarsódi
0,5 tsk lyftiduft
0,5 tsk salt
100 gr hakkaðar heslihnetur
3/4 stór poki hnetusmjörs M&M
ca 80 gr Rjómasúkkulaði
Aðferð:
Hræra saman sykrunum og smjörinu. Bæta við egginu og vanilludropum og blanda vel, setja þurrefnin útí. Heslihnetur, gróf-brytjað súkkulaði og mulið M&M í restina, gerið litlar kúlur, baka í 15 mín við 175°c. Passa að baka ekki of lengi.
Einkunn: 9,0