ÉG væri til í að prófa bláberja og heslihnetu Pringles
Thaimatstofan – Pad Thai & Massaman
Letin tók völdin, náði í take-away frá Núðluhúsinu. Massaman og Pad-Thai. Líklegast besti Thai-matur á landinu. Krua-Thai er klárlega ofmetinn en Thai-matstofan er góð ef maður er á hraðferð. Na na thai í Skeifunni er líklegast með bestu Massaman sósuna vel creamy en overall held ég að Núðluhúsið hafi vinninginn. Pad-Thai-ið var mjög gott, gæða…
Krydd & kavíar – hamborgari
Hamborgari með bacon (mmm bacon) hrásalat, gular baunir (að sjálfsögðu) og kartöflubátar frá Krydd og Kavíar (a.k.a. Lítið krydd og engin kavíar). Frekar bragðlaust kjöt, þunnur og seigur borgari, brauðið var ekki hitað og sósurnar voru bragðlausar. Einkunn: 5,0 (draslflokkur)
Maísbaunir / gular baunir
Gular baunir fara vel með öllu. Gular baunir eru snæddar á himnum! Svo er hönnunin svo smart líka, klassískt, einfalt, bjútífúl!
Indónesískt kaffi
Vinnufélagi benti mér á að Indónesískur matur væri hrein upplifun að snæða. Miðað við það sem google segir mér þá er ég verulega spenntur! http://www.tasty-indonesian-food.com/indonesian-cuisine.html
Tagliatelle
Þetta borðaði ég í kvöld: Tagliatelle með piparosta-rjómasósu, brokkólí, bacon og kjúkling. Serverað með spínati, rucola, konfekt-tómötum og hvítlauks brauði…og auðvitað haugur af parmesan..mmm ostur. Einkunn: 8,0
Innblástur
Þessir fylgjast með mér í eldhúsinu. Þetta er allt spurning um balance.
Tortillur
Þetta brasaði ég í kvöld. Tortillur með osti, villisveppaosti, HoneyPecanBBQ sósu (fæst í Kosti), tvö harðsoðin egg, , steiktur laukur, hálfur tómatur og hvítlaukspipar, smellt í Foreman-inn í 6 mín. Serverað með sætum kartöflum (bökuðum í ofni) og léttmajó með dass af hunangsDijon sinnepi. Díliss! Einkunn 8,5
Vanmetið hráefni: Steiktur laukur
Steiktur laukur! Fer vel með öllu, fór á Thailenskan veitingastað í Helsingborg og þar settu þeir steiktan lauk yfir Massaman réttinn sinn, það var görgioso!
Greifinn – grísaloka
Grísaloka á Greifanum á Akureyri. Kom verulega á óvart gæða grísakjöt marinerað í teryiaki legi, gott combo með sultuðum rauðlauk. Var einn af ódýrustu réttunum á annars allt of dýrum matseðli. Einkunn 8,5.
