Sunnudagar eru jömmí-dagar

Á sunnudögum má maður nú aðeins. Datt í nostalgíu og hræðri Royal búðing og þeytti rjóma. Til að fríska aðeins uppá og tvista þetta aðeins þá setti ég Jonagold-epla bita útí karmellu búðinginn og stráði svo kókos yfir. Setti síðan banana og hnetukurl yfir súkkulaði búðinginn. Rótsterkt kaffi þurfti svo til að stemma þetta kruðerí…

Meistaramorgunmatur

Meistara-morgunmatur í dag, á sunnudögum má meira en á öðrum dögum. Ristað brauð með hummus, reyktri kjúklingaskinku, HP-sósu (ómissandi í sunnudags-morgunmat), egg og hvítlaukspipar, skolað niður með eðalkaffi. Svo er ekki verra að fá sér dökkt súkkulaði til að fylgja þessu eftir.

Grillaðar grísakótilettur

Einfalt í kvöld, grillaðar grísakótilettur með xtra BBQ-sósu, bökuð kartafla með nóg af hvítlaukssmjöri, böns af gulum baunum, súrar gúrkur og smá spínat. Toppað með kaldri piparsósu. Einkunn: 8,0

Hamborgarafabrikkan – Herra Rokk

Hamborgarafabrikkan, Herra rokk. Virkilega góður borgari, gráðostur, egg, beikon..mmm beikon! Væri brill að bæta við sultuðum rauðlauk til að vega uppá móti ostinum. Eini mínusinn við þennan rétt eru fröllurnar, mér finnst þær vera annars flokks, framsetningin er annars ágætt þó svo diskurinn mætti vera minni. Einkunn: 8,0

Pylsuvagninn í Laugardal – Frönsk pylsa með chillisinnepi

Eftir ferð á vel heppnaðan fótboltaleik er fátt betra en að koma við í pylsuvagninum í Laugardal og fá sér eina franska með sinneps-chilli sósu. Sósu-úrvalið þar er gríðarlegt en ég mæli sérstaklega með sinneps-chilli-inu, rífur vel í og hefur ljúft eftirbragð. ÞEssu skal svo skolað niður með annað hvort Malt í gleri eða sykurskertri…

Í Rúmeníu borða þeir beljumaga!

Árið 2004 fór ég ásamt tveimur öðrum Íslendingum og haug af Evrópu-búum í ferð á vegum ESB til Rúmeníu. Tilgangurinn var aðallega að byggja upp tómstundarúrræði fyrir götubörn (Roma-fólks) og kynna evrópska hugmyndafræði eins og samlyndi, virðingu, vináttu og fleira. Heimamenn tóku misvel í þetta. Ég lærði margt um manneskjuna og aðrar skepnur í þessari…

Afgangar

Ef það er eitthvað sem Nigella Lawson hefur kennt mér þá er það það að kunna að meta afganga. Í kvöld: Afgangur gærkvöldsins, ítalskar kjötbollur, ristað brauð með smjöri og osti og slettu af Dijon hunangs-sinnepi mmm. Hægt er að fylgjast með matardagbók Nigellu hérna: http://www.facebook.com/NigellaLawson

Ítalíanó mítaboló!

Ítalskar kjötbollur og heilveitipasta, that´s what´s cooking! Það er mjög auðvelt ef maður er latur að kaupa bara forsoðnar kjötbollur útí búð….en það er svindl, auk þess þá fær maður alltaf eitthvað ógeðis aukabragð sem ég þoli ekki. í kjötbollurnar notaði ég: UN-hakk, tvö egg, slatta af TUC-bacon kexi, hálfan pakka af púrrulauksúpudufti, afgang af…

Saffran – Heitur trópískur draumur

Saffran – Heitur trópískur draumur. Kjúklingur, rjómaostur, bananar og oregon á speltbotni. Sumir kalla þetta hrökkbrauðsbotninn. Ég er hrifinn af þessari, á alltaf erfitt að velja á milli þessarar og þeirrar marokkósku með Turmerc lambakjötinu. Bananarnir gera útslagið, það er eitthvað við banana á pizzu sem gerir mig ruglaðann. Salatið er ágætt með en oft…

Regnbogakaka

gastrogirl: rainbow layer cake. Alvöru metnaður í skúffukökugerð!