Muffins

Laugardagar eru kjörnir dagar til að baka muffins og gera tilraunir. Meira síðar.

E. Finnsson, já takk!

Eitt best geymda leyndarmálið í eldhúsinu, E.Finnsson Hunangs sinnepssósan, mjög ódýr en óóótrúlega góð og passar með öllu, rífur pínu í alveg nákvæmlega eins og sinnepssósur eiga að gera. Topnotch!

Baconvafin kjúklingabringa

Bacon vafin kjúklingabringa, krydduð með Jamaican-rub. Cous-cous og spínat salat með parmesan, serverað með smá sinnepssósu. Bjúddari. Einkunn: 8,0

Ommeletta

Mánudagsmatur, ommeletta með steiktum kartöfluskífum, lauk, papriku, tómötum, osti, parmesan og bbq!. Frábært fyrir kvöldæfinguna! Einkunn: 7,5

Fylltar grísalundir með grænum eplum

Fylltar grísalundir með grænum eplum, chilli, rauðlauk, döðlum og olíu, gratíneraðar kartöflur með rjóma, hvítlauk og miklum osti, romain-salat, gular baunir og engifer sósa. Barefoot Pinot Grigio drukkið með. Stórgott! Einkunn: 9,0!

Fylltar grísalundir

Snákarnir eru tilbúnir á pönnuna! Fylltar grísalundir, í fyllinguna notaði ég græn epli, ferskan chilli, döðlur, rauðlauk og ólívíu-olíu, fleiri myndir síðar.

Ruby Tuesday – BBQ Steakhouse borgari

Þetta er BBQ Steakhouse borgari á Ruby Tuesday, algjör hnulli, með laukstráum, bbq-sósu, nóg af sinnepi og mæjó. Virkilega góður borgari, nóg af kjöti, full mikið af frönskum og algjört lykilatriði að fá sér hunangs-sinnepssósu með. Einkunn: 8,5

Munchies

Þegar munch-þörfin grípur mann á kvöldin er fátt betra en ristaðar möndlur, smá 70% súkkulaði og stórt glas af ískaldri léttmjólk með klökum.

Pylsur og kartöflumús

Það er alltaf hægt að hressa uppá tiltölulega einfalda rétti með smá fínerí eins og parmesan. Mexíkó-pylsur frá Kjarnafæði eru ljómandi góðar og sterkar, hér með spagettí, tómatsósu og kartöflumús sem er bragðbætt með þeyttum rjóma og múskati, súrar smágúrkur á kantinum. Gott stöff.

Bakaðar möndlur

Frábært snarl, bakaðar möndlur. Annar helmingurinn er með hunangi, vanillusykri og kanil og hinn með laukdufti, hvítlaukspipar og chillidufti. Möndlurnar eru vættar í olíu og bakaðar í ca 20 mín. Jömmí!