Laugardagar eru grill-dagar. Kryddaði kjúklingabringur með Mesquite frá McCormick sem er fáránlega gott smokey krydd, lét svo liggja í bbq-sósu í klukkutíma áður en ég smellti þessu á grillið. Var ekki með salat en grillaði rauðlauk (skar kross í toppinn og setti smjör í sárið), sætar kartöflur, vorlauk og sæta papriku. Síðan bjó ég til…
Gandhi – alls konar
Smellti mér á Gandhi sem er indverskur (döh!) veitingastaður fyrir neðan Skólabrú. Lætur ekki mikið yfir sér en um leið og inn er komið taka huggulegheitin við, frábært viðmót starfsfólks, góð lykt á staðnum og Bollywood tónar í græjunum. Ég hefði viljað panta mér 7-8 rétti til að smakka en verðlagning staðarins eða kannski frekar…
Hafragrautur
Hafragrautur, dýrari týpan í kvöld. Haframjöl, vatn, smá salt, skeið af hnetusmjöri og 2 skeiðar kókosmjöl, kanilsykur útá. Einfalt gott og tiltölulega hollt. Einkunn: 7,5
NAM – Hrísgrjón með kjúklingi
Hrísgrjón með kjúklingi frá Nam í Ártúnsbrekkunni. Ótrúlega góður matur, skil ekki af hverju þeir opna ekki stað nær siðmenningunni. Svolítið flókið að panta matinn hjá þeim, þ.e.a.s. maður velur allt í réttinn sinn sjálfur. Ég fékk mér hrísgrjón með kjúklingasúpu, bauna-grænmeti, kjúklingur, kryddhrísgrjón, wasabi-majónes, bangbang-sósa, ristaður hvítlaukur og hnetur. Skolað niður með Diet Canada…
Sætkartöflusúpa
Tælensk sætkartöflusúpa, grunnur: Lífræn Thai Sweet Potato Soup í fernu, fæst í Kosti, bragðbætt með hvítlauk, miklu chilli og kókosmjólk. Grilluð kjúklingabringa brytjuð og sett útí, sýrður rjómi og voila. Fljótlegt, létt og gott. Einkunn: 8,0
Ostaveisla
Ostakvöld. Höfðingi, Paprikuostur og Applewood sem er einmitt uppáhalds osturinn minn, vel reyktur og kæstur og hrein upplifun að snæða hann með eplabita. Beikon kex, heimagerð chilli-sulta sem fékkst á skottmarkaði og heimagerð bláberjasulta af efri hæðinni. Gúrmei sunnudagskvöld.
Afgangar
Sunnudags afgangar, sesar-salatið frá því í gær, smá beikon, spælt egg, bbq-sósa og hvítlauksbrauð ristað í Foreman-inum. Afgangar rúla! Einkunn: 8,0
Sesar-salat
Sesar-salat er einfalt og hægt að útfæra eins og maður vill. Sigurður Guðmundsson vínráðgjafi TB endurnýjaði dálæti mitt á þessum stórkostlega rétti. Ég gerði síðan mína útgáfu. Skera niður kjúklingabringur og velta upp úr eggi, blanda síðan saman raspi og Hickory BBQ kryddmixi og velta bitunum upp úr, í eldfast mót og í ofn í…
Muffins
Múffur í eftirmat, tvenns konar, gerði bara grunn-uppskrift, skipti svo í tvennt og í annað settið fór epli, kókos og epla-essence (eins og maður notar í brjóstsykursgerð) og í hitt fór banoffee kakó, Herseys 70% súkkulaðibitar og ristaðar hnetur. Í grunnuppskriftina notaði ég rjóma í staðinn fyrir mjólk til að gefa þessu extra richness, bragðast…
Eðal kakó
Systir mín sem býr í Skotlandi sendi mér þetta kakó, með þremur mismunandi bragðtegundum, banoffee, cinnamon og coconut, gaman að leika sér með þetta í bakstrinum og gefur framandi, öðruvísi bragð.
