Sem aðdáandi breskrar matargerðar þá er ég mjög metnaðarfullur þegar kemur að bacon-i, hrærðum eggjum og baunum. Ég horfði á nokkra þætti með Heston Blumenthal um helgina, hann er breskur kokkur sem spáir í efnafræðilegri samsetningu matsins sem við borðum. Hann tekur fyrir eitt hráefni í hverjum þætti. Frábærir þættir og hægt að horfa á…
Dýrari týpan af pizzu
Gerði öðruvísi pizzu í kvöld, á annan helminginn fór bacon (að sjálfsögðu), camenbert og aspas, á hinn helminginn fór kjúklingur, basil-pestó, laukur, sveppir, maísbaunir og piparostur. Ég setti bjór og hunang í deigið þannig að botninn varð stökkur og bragðmikill. Skellti extra þykku bacon-sneiðunum og kjúklingabringu í Fore-manninn. Þegar allt áleggið var komið á þá…
Krydd og Kavíar – Pylsur
Loksins eitthvað almennilegt í matinn í mötuneytinu hjá Krydd & Kavíar, kalkúnapylsa, bratwurst og frankfurter, tómatsósa, sinnep, pretzel og kartöflusalat…og gular baunir. Jömm! Einkunn: 8,0
Skyr
Krakkar, það er ekki töff að brasa alla daga! Það er kúl að borða hreint skyr…með berjum…agave-sýrópi…rjóma…flatkökum og öðru gúrmei stöffi!
Brasara breakfast
Brasbrasbras og aftur braaas. Alvöru bras á alvöru mánudegi. Meistaramánudagur? Afgangur af kartöflusprengjum og nautakjöti, morgunpylsur, bbq-bakaðar baunir og spælt egg…mmm. Einkunn: 8,5
Kartöflubombur!
BBQ boys eru endalaus uppspretta bras-hugmynda. Sá þá gera “potatoe-grenades”, ákvað að prófa sjálfur. Þetta snýst um að fá jafnar og nokkuð stórar bökunarkartöflur, taka kjarnann úr þeim og fylla með kjöti og góðgæti, vefja svo með bacon-i og grilla. Ég ákvað að hafa kartöflubombur sem hliðardisk fyrir nautafillet með bearnaise. Svona gerir maður það:…
Hvítlauks og chilli kjúklingapasta
Langaði í eitthvað semi-ferskt í kvöld. Kjúklingabringa í Foreman-inn, steikti brokkólí, lauk og hvítlauk, sauð skrúfupasta og setti svo allt saman og mallaði með chilli og hvítlauks-pestó frá Jamie Oliver, dass af parmesan, beint í mark. Einkunn: 8,0
Krókódílasteik!
Fékk nokkrar hugmyndir að láni frá The BBQ Boys. Gerði mína útfærslu á kjöthleifnum þeirra. Notaði nautahakk fyllt með hvítlauk, rauðlauk, parpiku og chilli. Vafið innan í bacon-teppi og löðrandi í bbq-sósu. Svona gerði ég það: Byrjaði á því að skera grænmetið smátt, flatti síðan út nautahakkið eins og ég væri að fara gera pizzu…
BBQ-Boys
Bróðir minn kynnti mig fyrir The BBQ Boys, nú er ég húkt á þessu! (Source: http://www.youtube.com/)
Boozt/hollari shake
Late dinner. Léttmjólk, klaki, frosin hindber, smá agave. Hnausþykkt, ískalt og ferskt.
