Hnetusmjörs M&M kökur…mmm! Uppskrift: 125 gr smjör 110 gr sykur 120 gr púðursykur 1 egg 2 tsk vanillusykur 220 gr hveiti 0,5 tsk matarsódi 0,5 tsk lyftiduft 0,5 tsk salt 50 gr hakkaðar heslihnetur Ca hálfur stór poki hnetusmjörs M&M Aðferð: Hræra saman sykri, púðursykri og smjöri. Bæta við egginu og blanda vel, setja þurrefnin…
Sir Wellington…Beef Wellington
Ég var rosalega stressaður fyrir þessu. Búinn að lesa mikið og horfa á marga Youtube-þætti um Wellington steikur, það er auðvelt að klúðra þessu. Fór í Kjöthöllina og keypti nautalund (sem inniheldur líklegast demantaryk miðað viðverðið á henni). Byrjaði á því að brúna lundina á öllum hliðum og kældi svo niður til að stífa hana…
Svikin humarsúpa
Svikin humarsúpa brasarans. Frábær gulróta/engifer/cashew súpa (fæst í Kosti) hituð og bragðbætt með hvítlauk, chilli og svörtum pipar. Beikonvafðar döðlur (svikinn humar) grillaðar í Formann, bætt útí. Með þessu var ristað brauð með Jóla-osti, beikon og Honey mustard sósu. Obboslega gott bras. Einkunn: 8,5
Fylltar grísalundir…taka2
Ég hef áður fjallað um fylltar grísalundir. Þá notaði ég græn epli og döðlur. Að þessu sinni langaði mig að taka þetta á næsta level…og vefja því inn í bacon. Byrjaði á því að snyrta lundirnar vel þeas fjarlæga fitu og sinar, síðan skar ég í hana miðja og flatti út. Ég var með tvenns…
Slutty Brownies!
Internetið er undratól, þar lærði ég um lystisemdir þess að skeyta saman ýmsum réttum. Um helgar finnst mér gaman að baka og ég fann á netinu concept sem heitir Slutty Brownies. Basically þá þýðir það að skeyta saman brownies-köku, blondie-köku og Oreo kexi. Svona segir internetið að þær eigi að líta út: Hér er mitt…
Kakó sem rífur í
Í hausthörkum og Airwaves hugleiðingum er fátt betra en að útbúa rjúkandi gott kakó. Ég notaði: Banoffee kakó 70% súkkulaði Smjör Chilli-duft Salt Kanil Vanillusykur Gúrmei!
Cannelloni Lasagne
Tómas Hermannsson sálfræðingur og Laugarness-barón benti mér á þennan einfalda rétt. Innihald: Skinka Lasagne plötur Ostur —————- Tómatmauk Pastasósa Laukur Chilli Hvítlaukur Agave sýróp Basil Krydd —————— Gratín-ostur ——————- Ég fór í Pylsumeistarann á Laugalæk og náði mér í gúrmei hunangsskinku sem ég notaði í réttinn. Maður byrjar á því að leggja lasagne plötur í…
Braskryddin
Uppáhalds bras-kryddin mín: Túrmerk frá Rajah – gult, sterkt og nauðsynlegt í indverskan mat Jamie Oliver BBQ seasoning – með kúmen, chilli og fleira gúmmelaði Garlic and Pepper grinder – gott með öllu brasi Jamie Oliver Tellicherry Black Pepper – besti svarti piparinn, svo einfalt. Jamaican Jerk – Frábært með kjúkling, gefur suðræna tóna
KEX – Djákninn á Myrká
Fór á KEX og fékk mér Djáknan á Myrká (beikonvafðar döðlur) og Sæma chips (kartöflubátar með kúmen-majó). Þetta var gúrmei nasl, gott með bjórnum og beikonið var nálægt fullkomnum. Majóið var athyglisvert, ég fann Turmerk keim. Athyglistvert. Einkunn: 9,0
Kjúklinga og bacon samloka
Í kvöld var brasað! Kjúklinga og bacon samloka, með camenbert, bbq-sósu, létt majó og dijon sinnepi. Serverað með sætum og venjulegum frönskum, sweetchilli-jógúrtsósu og spínat-salati með feta. Gúrmei bras! Einkunn: 8,5
