Ég fór í Pylsumeistarann við Laugalæk og keypti alvöru reykta hunangsskinku. Ótrúlega gaman að kíkja þarna við, mæli með Fjalla-Eyvindar pylsunum.
Í steikarsamlokuna notaði ég rússneskt rúsínubrauð sem fæst hjá Korninu, önnur brauðsneiðin er smurð með sterku sinnepi svo er hlaðið á osti, ég notaði Ísbúa og Gouda. Rauðlaukur, smátt skornar döðlu og skinkan fara svo í röðina. Ég tók smá bút úr miðju brauðinu til svo að osturinn myndi brenna aðeins (hólýmóly það er svo gott).
Síðan er samlokan steikt á báðum hliðum á grillpönnu með ólívuolíu og borið fram með góðri sósu.
Gúrmei bras.
Jeminn. Maður verður svangur að skoða þetta. Frábær síða hjá þér frændi. 🙂