Það er alltaf hægt að hressa uppá tiltölulega einfalda rétti með smá fínerí eins og parmesan. Mexíkó-pylsur frá Kjarnafæði eru ljómandi góðar og sterkar, hér með spagettí, tómatsósu og kartöflumús sem er bragðbætt með þeyttum rjóma og múskati, súrar smágúrkur á kantinum. Gott stöff.
Author: Töddi brasar
Mexíkóskt lasagne
Þetta er súper einfaldur réttur sem hentar sérstaklega vel til átu samhliða bjórdrykkju. Maður getur líka látið stemmingu ráða hverju maður bætir í hann. Í þetta skiptið setti ég í þessari röð: Rjómaostur Salsa Kjúklingur (eldaður) Rauðlaukur BBQ Doritos Maísbaunir Rifinn ostur Rfiinn piparostur. Kjúklingurinn er fyrst steiktur á pönnu alveg í gegn og ég…
Steikt ostasamloka með hunangsskinku og döðlum
Ég fór í Pylsumeistarann við Laugalæk og keypti alvöru reykta hunangsskinku. Ótrúlega gaman að kíkja þarna við, mæli með Fjalla-Eyvindar pylsunum. Í steikarsamlokuna notaði ég rússneskt rúsínubrauð sem fæst hjá Korninu, önnur brauðsneiðin er smurð með sterku sinnepi svo er hlaðið á osti, ég notaði Ísbúa og Gouda. Rauðlaukur, smátt skornar döðlu og skinkan fara…
Steikarsamloka með radísusósu og Ísbúa
Ég marineraði nauta innralæri upp úr rauðvín, olíu, sítrónusafa, soya, bbq og kryddum, stráði svo sesam yfir og lét standa í 2 klst. Steikti svo á pönnu og inn í ofn í 15 mín. Skar svo í þunnar sneiðar og setti í samloku með radísusósu, rauðlauk, tómötum, lambhaga, bbq sósu og þykku lagi af Ísbúa osti….
Baconvafin kjúklingabringa með hnetusmjöri
Kjúklingurinn er forsteiktur og chillikryddaður í Formanninum, síðan er önnur hliðin smurð með hnetusmjöri og vafin síðan í hunangsbacon. Meðlæti er síðan marokkóskt kúskús og og wok-grænmeti sem er steikt upp úr vandræðalega góðri teriyaki sósu (sem fæst í Kosti) Tiltölulega létt og gott gúrmei bras 🙂
Bratwurst í baconteppi með döðlum
Þetta er beygla með smurosti, bbq-sósu, rauðlauk, bratwurst í baconteppi, sterku sinnepi, osti og döðlum. Bratwurst-pylsurnar eru skorna langsum og þær fléttaðar í hunangsbacon-teppi. Döðlurnar eru svo á spjallinu við sinnepið allan tímann. Gúrmei bras.
Kjúklinganúðlur með eggi, sesam og teriyaki
Hitaði instant kjúklinganúðlur, kjúklingabringa í Formanninn, krydduð með salti og chilli. Egg steikt og hrært á pönnu, laukur svissaður, núðlurnar og bringan niðursneidd sett útí, teriyaki sósan og sesam ofaná. Súper flótlegt, einfalt og gott.
Pólskar pylsur og afgangar
Einn af helstu kostum þess að halda stórt matarboð eru afgangarnir, ég er búinn að borða talkúm kalkún í öll mál frá því á páskum. Að þessu sinni notaði ég meðlætið, sæt kartöflumús, villisveppaostasósa og kalkúnafylling. Tvær pólskar pylsur úr pylsubúðinni á Laugalæk (mæli með því að þið kíkið þangað!) og extra þykkt bacon. Skar…
Kalkúnn með appelsínu, kanil og döðlufyllingu
Það var nostrað við þennan risafugl. Hann var sprautaður með smjöri, appelsínusafa og hlynsírópi. Í fyllinguna notaði ég Stove Top fyllingu en bætti við hvítlauk, rauðlauk, appelsínum, kanilstöngum og smátt söxuðum döðlum. Eldun: Nú, þegar kvikindið er þiðið og búið að skola það og reita fjaðrarestar af þá er hann sprautaður með smjörblöndunni, undirhúðina og…
Hnetusmjörsborgari með grænu epli
HEf gert svipaðann þessum áður, þetta er rosalegt! Hamborgari með cheddar osti, bacon, hnetusmjöri, rauðlaukssultu og grænu epli. Serverað með frönskum og hunangssinnepssósu, allt þetta smellur fullkomnlega saman, bragðast best með léttum öl. En Töddi, er þetta hinn fullkomni hamborgari? Hann er nálægt því…hann er ansi nálægt.
