Pólskar pylsur og afgangar

Einn af helstu kostum þess að halda stórt matarboð eru afgangarnir, ég er búinn að borða talkúm kalkún í öll mál frá því á páskum. Að þessu sinni notaði ég meðlætið, sæt kartöflumús, villisveppaostasósa og kalkúnafylling. Tvær pólskar pylsur úr pylsubúðinni á Laugalæk (mæli með því að þið kíkið þangað!) og extra þykkt bacon. Skar…

Kalkúnn með appelsínu, kanil og döðlufyllingu

Það var nostrað við þennan risafugl. Hann var sprautaður með smjöri, appelsínusafa og hlynsírópi. Í fyllinguna notaði ég Stove Top fyllingu en bætti við hvítlauk, rauðlauk, appelsínum, kanilstöngum og smátt söxuðum döðlum. Eldun: Nú, þegar kvikindið er þiðið og búið að skola það og reita fjaðrarestar af þá er hann sprautaður með smjörblöndunni, undirhúðina og…

Hnetusmjörsborgari með grænu epli

HEf gert svipaðann þessum áður, þetta er rosalegt! Hamborgari með cheddar osti, bacon, hnetusmjöri, rauðlaukssultu og grænu epli. Serverað með frönskum og hunangssinnepssósu, allt þetta smellur fullkomnlega saman, bragðast best með léttum öl. En Töddi, er þetta hinn fullkomni hamborgari? Hann er nálægt því…hann er ansi nálægt.

Mexíkósk beygla

Já þetta gerðist! Baconvafin kjúklingabringa böðuð í trufflusinnepi á beyglu með bacon-smurosti, Jack Daniels BBQ-sósa og smá Hellmans, ostastrimlar á toppinn og serverað með BBQ-Doritos. Laufléttur mánudagur!

Bacon og banana pizza

Afgangapizza, gerist varla betra. Bacon, bananar, chilli, gráðostur á helming, pepperoni, laukur, tómatar, ætiþistlar, mexíkó-ostur, hvítlaukur á hinn. Gott stöff! Það er aldrei nóg af osti.

Mexíkósk nautalund

Erlendar ungnautalundir voru á tilboði í Krónunni, nýtti tækifærið og smellti mér á eina slíka. Það var reyndar ansi mikil fita, sinar og annað sem fylgir yfirleitt ekki þegar maður kaupir íslenskar lundir en lét mig hafa það, kutinn vann yfirvinnu fyrir eldun. Ég ákvað að lundin væri frá Mexíkó því hvergi var tekið fram…

Baconvafin kjúklingabringa með hunangsristuðu grænmeti

Bacon vafin kjúklingabringa með hunangsristuðu grænmeti. Ótrúlegt hvað bringurnar verða mjúkar og djúsí þegar maður vefur gljáandi bacon-inu utan um. Wok-grænmetið er ristað létt á pönnu (ná frostinu úr) síðan set ég 3 msk af rauðu Dijon sinnepi og 2 msk af hunangi og rista vel og jafnvel brenni smá því þannig fíla ég það….

Bratwurst beygla með bacon og bbq sósu

Beygla með bratwurst pylsu, bacon og bbq-sósu. Steikti pylsurnar og skar rauf í þær og setti rautt Dijon sinnep með papriku og hvítlauk (fæst í Nóatúni), ég þakka Tómasi Hermannssyni fyrir ábendinguna. Beyglurnar eru smurðar með rjómaosti með sólþurrkuðum tómötum, pylsur þar ofan á, svo bacon, ostur, bbq-sósa og tómatsneiðar. Serverað með sýrðum rjóma. Einkunn:…

Bananabrauð með kanil

Bananabrauð. Þegar maður er hálf veikur heima, brjálað veður úti þá er fátt betra heldur en að smella í bananabrauð. Volgt bananabrauð með smjöri og osti getur læknað ótrúlegustu kvilla. Uppskrift: 2 vel vel þroskaðir bananar 150gr sykur 1 egg 150 gr heilhveiti 100gr hveiti 0,5 tsk matarsódi 1 tsk kanill 1 tsk salt 1…

Ofurnachos

Ofur-nachos!! Var með tvenns konar flögur sem ég raðaði á brúnirnar á stórum disk. Síðan kom þetta í nokkrum lögum. Fyrst var nautahakk, síðan refried baunir, ostasósa og salsasósa. Bacon þar ofan á, rifinn cheddar, guacamole og sýrðum rjómi. Nautahakkið var steikt með rauðlauk, hvítlauk, gulum baunum og bbq-sósu. Síðan setti ég allt fjallið í…