Eftir allt kjöt og súkkulaðiát hátíðanna fannst mér ég verð að tjúna mig niður, ekkert bacon eða bras. Ég gerði tilraun til að borða mötuneytisfisk í hádeginu og fékk heilan beinagarð uppí mig og missti matarlystina. Ég varð að fá eitthvað létt og gott og gramsaði í skápunum, niðurstaðan varð pasta með tómat-pastasósu, kirsuberjatómötum,…
Author: Töddi brasar
Jarðaber með súkkulaði og kókos
Á jólunum og í kósýheitum á „heitum“ helgarkvöldum er fátt betra en kampavín og súkkulaðidýfð jarðaber, jafnvel sem morgunmatur með sódavatns-appelsínusafa blöndu…mmm. Ég fann stórkostleg jarðaber frá Egyptalandi í Nóatúni, stór, stinn og falleg. Ég dýfði þeim í blöndi af suðusúkkulaði, rjómasúkkulaði og vanillusykri sem ég hafði brætt saman yfir vatnsbaði á meðalhita. Stráði…
Hvíthyskis-sörur
Ég elska góðar sörur um jólin…ég elska enn meira hvíthyskis-sörurnar mínar. Þetta er ósköp einfalt, smyrjið hnetusmjörsblöndu á ritzkex, hellið bráðnu súkkulaði yfir, stráið heslihnetum yfir, geymið í kæli og reynið að geyma þær þar í smá tíma (það er erfitt, þær eiga það til að klárast). Innihald: Ritzkex Hnetusmjör Sterkt kaffi (til að blanda…
Trönuberja- og pistasíukökur
Mig langaði að prófa eitthvað öðruvísi, í Ameríkunni er voða vinsælt að nota pistasíur í baksturinn. Þessi uppskrift er í raun bara venjuleg smáköku-uppskrift að viðbættum búðingi, berjum og hnetum og ábyggilega hægt að nota alls konar útgáfur af grunndeiginu. 150 gr smjör100 gr púðursykur120 gr sykur200 gr hveiti0,5 tsk matarsódi0,5 tsk lyftiduft0,5 tsk salt1…
Seigar súkkulaðibitakökur með piparmyntukeim
Ég ligg svoleiðis yfir kokkaþáttum og sérstaklega Nigellu þáttum yfir jólahátíðarnar og hún var að gera seigar enskar smákökur í einum þættinum og þá datt mér þetta twist í hug, kaffi og piparmynta. Þetta bragðast líka svona ljómandi vel en verð að viðurkenna að ég var pínu stressaður með þetta! 175 gr hveiti100 gr bráðið…
Parmesan ostakex
Þessari uppskrift var laumað að mér í gegnum flóknar leiðir og ég tek fram að ég á ekkert í henni, en ég mátti til með að prófa: 100gr kalt ósaltað smjör100gr hveitisaltslatti af cayenne-pipar dufti1,5tsk sinnepsduft50gr fínrifinn þroskaður cheddar50gr fínrifinn parmesan1 hrært eggSesam (á toppinn)Chilliflögur (á toppinn) – Smjör og hveiti er blandað saman í…
Eggja og gráðostabeygla
Sunnudagur, bit under the weather, ég þarf ost, bráðinn ost og nóg af honum! Þetta er beygla með osti, chilli sinnepi, steiktum lauk, linsoðnum eggjum, gráðosti og súrum gúrkum, sett í Foreman grillið með smjörpappír á toppnum. Serverað með Hellmans majó sem er kryddað með svörtum pipar og hindberjasultu. Holymoses!
Pylsur í mexíkósku teppi
Svo einfalt, slísí en gott. Þetta eru pylsur pakkaðar inn í tortillakökur, fullt af osti, salsa-sósu og maísbaunum. Þetta er eins einfalt og ein máltíð getur orðið. Tortillan er coveruð með osti, pylsur þar ofan á, salsa ofan á það, maísbaunir, meiri ostur, önnur tortilla þar ofan á, pakkað inn og sett í Foreman grill…
Cajun flensusúpa
Á köldum degi þegar kvefið sækir á jafnast fátt á við góða eitursterka súpu. Þetta er í raun frekar basic stöff, hérna er uppskriftin:1 L Tómatdjús1 dós skornir tómatar1 dós tómatpuree2 rauðlaukarSlatti af hvítlauk1 ferskur chilli1 gul paprika2 sellery stönglar3 kjúklingabringurSaltPiparÞurrkað chilliKúmenBasil…og fleiri góð krydd eftir smakki Bringurnar eru eldaðar og kryddaðar með CajunBBQ kryddi,…
Þynnkuloka
Ég fór í Frú Laugu og keypti speltbrauð sem er framleitt hjá Sandholti, þetta brauð er rosalegt! Á dögum sem þessum þegar upplitið gæti verið betra þá þarf ég eiginlega að innbyrða tvo hluti: Bráðinn ost og bacon! Þess vegna setti ég saman þessa rosalegu samloku á henni er: BrauðRjómaosturSlatti af ostiTvö lög af lúxusskinku…
