Ég hef áður gert banananabrauð hérna á síðunni en ég sá hjá Nigellu nýja útfærslu og setti mitt tvist á það. Bananabrauð með súkkulaðibitum. Eina vesenið mitt var að ég á ekki almennilega eldhúsvigt og þess vegna eru mælieiningarnar dáldið slumpaðar. 2 bananar (vel þroskaðir) 2 egg 2 dl sykur 3 dl hveiti 1 tsk…
Author: Töddi brasar
Gay breakfast
Af tilefni Gay Pride í Reykjavík þá útbjó ég hýran morgunmat. Þetta eru kanil-beyglur með rjómaosti og bláberjasultu.Síðan eru hrærð egg með hnetusmjöri og kókosflögum og einni rönd af sweet honey hickory bbq-sósu. San Fan-tastico!
Eðalpylsur
Pylsumeistarinn við Laugalæk…krakkar, kíkið á þetta kaffi! http://pylsumeistarinn.is/ Þetta er Frankfurter pylsa með sólþurrkuðum tómötum og svo eplapylsa sem var sérstaklega góð. Meðlætið er lauksulta, gróft sinnep, steiktur laukur, bbq-sósa, ostur og brauð. Fljótlegt og gott.
Ostaveisla á Pizza 67, Vestmannaeyjum
Það var ekki hjá því komist þegar ég skrapp til Eyja í fyrsta skiptið að koma við á Pizza 67. Af nostalgíu ákvað ég að fá mér uppáhaldið mitt í gamla daga, Ostaveislu. Pizza hlaðin mozzarella, gráðosti, gouda og parmesan. P67 brást ekki bogalistinn og framreiddi dásamlega böku sem færðu mig aftur til 1998 þegar…
Texas Mac and Cheese borgarinn á Roadhouse
Roadhouse er líklegast uppáhalds hamborgarastaðurinn minn í dag, þeir eru ófeimnir við að taka áhættu í borgaraframboði og það væri gaman að sjá þá taka útfærslu á hnetusmjörs og eplaborgaranum mínum https://toddibrasar.wordpress.com/2013/01/14/gott-f-lk-h-rna-er-hann-kominn-besti-hamborgari/ Ég lét vaða að þessu sinni í Texas Mac and Cheese, ótrúlega hugrökk blanda af ostasósu, pasta, bacon og bbq-sósu Borgarinn kom mér…
Samloka með skinku og osti…dýrari týpan
Baleron skinkan hjá Pylsumeistaranum við Laugalæk er náttúrulega rosaleg, hún er léttreykt og bragðast góð ein og sér. Í þessa samloku notaði ég rússneska rúsínubrauðið úr Korninu (sem ég er með alvarlegt blæti fyrir). Svona er hún síðan uppbyggð: Slatti af osti – rauðlaukssulta – slatti af skinku – sterkt sinnep (slatti) – steiktur laukur…
Rabarbarasulta með kanilkeim og vanillusnúning
Svakalega er ég ánægður með að það vaxi trylltur rabarbari í garðinum hjá mér, þar vaxa reyndar líka jarðaber, gulrætur, kartöflur og alls konar. Ég henti í þessa fínu rabarbarasultu í kvöld: 700gr sykur2 dl dökkt agave sýróp2 tsk kanill1 tsk vanilludropar1 vanillustöng Rabarbarinn hreinsaður vel og skorinn í litla jafna bita. Allt sett í…
Austur evrópsk opin samloka
Pylsumeistarinn (Kjötpól) er frábær búð við Laugalæk, ég fer iðulega þangað og versla hnausþykkt bacon, gúrmei skinku og alls konar pylsur. Ég henti í þessa samloku til að verðlauna mig fyrir grimma æfingu í morgun. Brauðið fæst í Korninu og heitir rússneskt rúsínubrauð og er fáránlega gott, með rúsínum og kanilkeim. Ristaði það örlítið, svo…
Núðlur með hnetu og kókossósu
Grenjandi rigning og brjálað rok. Ekki séns að ég nennti út. Þess vegna réðst ég á skápana, setti eina kjúklingabringu í grillið ásamt smá baconi, kryddað með hvítlauk og CajunBBQ. Núðlusupu riggað upp og kúskús dregið fram. Þegar allt var klárt var allt sett saman í wok-pönnu og steikt með Thai peanut & coconut sósu….
Kúrekakjúklingur með bönunum, hnetum og bacon
Það er eitthvað svo stórkostlegt við það að henda einhverju jukki í fat, inn í ofn og vera svo með tilbúna máltíð. Ég vil trúa því að kúrekarnir í Ameríku hafi eldað allt nákvæmlega svona, allt í einn pott, yfir eld og málið dautt. Ég er algjör sökker fyrir bönunum í matseld og með baconblæti…
