BBQ-kjúklingasalat með vínberjum og ristuðum pekan-hnetum. Kjúklingabringur eru grillaðar með BBQ-marineringu Romain-salat og spínat þvegið og sett í skál Rauðlaukur Rauð vínber Ristaðar pekan-hnetur Dressingin: 3 msk majó 3 msk sýrður rjómi 1 msk Dijon sinnep 1 msk hunang 2 hvítlauksrif Sítrónusafi Einkunn: 8,5
Spagettí með kjötbollum
Fljótlegt og einfalt. Ég átti kjötbollur í frysti frá því ég gerði BBQ-pizzuna forðum daga, í þeim eru: nautahakk, mulið Ritz-kex, blaðlaukssúpu, ferskt basil, svartur pipar og hvítlaukur. Léttsteikti sveppi, hvítlauk og rauðlauk í smjöri, kryddað með salti og pipar, Four Cheese pasta sósa sett útá ásamt frosnu kjötbollunum (sem fengu að þiðna aðeins í…
Brasara pasta
Smellti mér í AC Milan treyjuna mína, setti Morricone á fóninn og hugsaði um sumarhita meðan ég brasaði kjúklingapasta með beikáni (í dag kalla ég það beikán (með amörískum hreim)), hvítlauksristuðum sveppum og rjómasósu. Þetta er svona semi-carbonara, ég nota enga eggjarauðu í sósuna, set frekar ost. Innihald: 200 gr litlir sveppir (skornir í tvennt)…
Hamborgari með hnetusmjöri og grænu epli
Gott fólk, hérna er hann kominn, besti hamborgari sem ég hef hrist fram úr erminni…á ævinni! Baconborgari með cheddar, hnetusmjöri og lauksultu. Hnetusmjöri makað á heitt brauðið. Lauksulta sett ofan á botnlokið, hamborgari með cheddar og svo 3 sneiðar crispý bacon. Ómæómæ! Einkunn: 9,5, baconið og hnetusmjörið voru í sleik allan tímann og lauksultan horfði…
Baconblóm
Á sunnudegi er tilvalið að fá sér bacon-blóm! Samstarfskona mín Eva Rós skoraði á mig og ég gat ekki skorast undan, sendi henni bestu þakkir. Baconinu er raðað í muffins form þannig að það hylji botninn, sett í ofn í smá stund til að koma því af stað, síðan er eggið sett varlega ofan í,…
Kjúklingasalat með bacon og eggjum
Kjúklingasalat með baconi, eggjum og granateplum. Innihald: 4 Kjúklingabringur Slatti af brauðrasp Krydd að eigin vali 1 Hrátt egg 3 Harðsoðin egg, skorin í blóm 6 sneiðar vel stökkt Bacon Hálft granatepli Blandað klettasalat 2 rifnar gulrætur 1 sætur chilli 1 Rauðlaukur Blandið saman kryddinu og raspinum (ég notaði Mesquite, chilli og hvítlauk) bringurnar eru skornar…
Tortillur með heimagerðu salsa
Tortillur með heimagerðu salsa. Í salsað notaði ég: 1 dós niðursoðna tómata í teningum með basil og hvítlauk 1 sætan ferskan chilli pipar (gróft skorinn) 2 skalottulauka (gróft skorna) Hvítlaukspipar Reykt paprikukrydd Chilli krydd (eftir smekk) Allt soðið saman og látið malla í ca 10 mín eða þangað til maður nær réttu þykkjustigi. Meðlætið var svo bbq-mareneraðar…
Bacon ídýfa
Frábær heit bacon-ídýfa í partýið. Innihald: 1 bolli majónes 1 bolli rjómaostur 8 sneiðar bacon 1 lúka rifinn mozzarella ostur 1 lúka rifinn cheddar ostur Hálfur blaðlaukur 1 lúka ætiþistlar Ritzkex Aðferð: Bacon-ið er steikt þar til það er alveg krispý. Þá er það þerrað og mulið niður, sett til hliðar. Hrærið saman majó og…
Roadhouse – T-model
Fór á Roadhouse í gær. Þetta er T-model borgarinn með bacon-i. Ljómandi gott stöff. Frönskurnar eru tvísteiktar, mjög gott í byrjun en verður þreytt til lengdar. Kjötið var fyrsta flokks og meðlætið ágætt. Ég hefði þó viljað sjá meira úrval af borgurum hjá þeim. Einkun: 8,0
Wellington, taka 2
Jóladags Wellington steikin var rosaleg. Ég fékk gríðarlegt magn af gúrmei matarvörum í jólagjafir og færi ég ættingjum og vinum bestu þakkir. Ég fékk meðal annars sterkt sinnep með trufflusveppaolíu, ég smurði nautalundina með því og í fyllinguna notaði ég skarlottulauk, sveppi og chestnuts sem komu með sendingu frá Skotlandi (skrítið að þetta fáist ekki…
