Ég fékk fyrirmæli um að græja desert sem væri ekki að springa úr kaloríum, súkkulaði eða hnetugumsi…þetta reyndist mér erfitt. Þetta er trifle með makkarónum, brómberjum, bönunum og kaffikaramellusósu. Kaffikaramellusósan er frá Stonewall Kitchen og þykir mér líklegt að hún sé framleidd á himnum..alla vega pökkuð þar. Í botninn set ég muldar makkarónur og sósu,…
Author: Töddi brasar
Bláberja og kókosmúffur
Á svona sunnudögum eins og er í dag, sólin skín, það er frískandi frost í loftinu en vorið er alveg að koma, er nauðsynlegt að baka eitthvað huggulegt. Að þessu sinni skellti ég í amerískar bláberja og kókos múffur. Ótrúlega bragðgóðar og mjúkar, fullar af berjum og ferskleika. Uppskrift:25gr bráðið smjör1 egg75 gr sykur1 dós…
Jarðaberjasnúðar með ostakökukremi
Það er gaman að leika sér með klassískar uppskriftir, hérna er mitt twist á hefðbundnum kanilsnúðum…jarðaberjasnúðar! Uppskrift:500 gr hveiti100 gr sykur0,5 pk þurrger1 tsk salt1 tsk vanillusykur1 dós kaffijógúrt0,5 dl nýmjólk80 gr mjúkt smjör Fylling:Bráðið smjörJarðaberjasultaFersk jarðaberKanill Glassúr:1 pk lítill rjómaostur50 gr mjúkt smjör2 msk nýmjólk0,5 tsk vanilludroparca 150 gr flórsykurSmá saltKókosmjöl Aðferð:– Þurrefnum er…
Penne pasta með rauðlauk, döðlum og anís
Það þarf ekki allt í þessum heimi að vera flókið. Þetta er penne-pasta salat með rauðlauk og döðlum. Innihald:Penne-pastaJamie Oliver pasta sósaRauðlaukurGul paprikaDöðlurSmjörSalatMaísbaunirRifnar gulræturBrauðteningarAnískryddSaltHvítlaukskrydd Pastað er soðið, þegar það er klárt er laukur, paprika og döðlur steikt úr smá smjöri, kryddað með salti, anís og hvítlauki. Pastanu og sósunni síðan skellt útí. Sett á salatið,…
Bacon og camenbert samloka með eggi
Obbosins bras! ValhnetubrauðOsturCrispy baconLauksultaSterkt sinnepCamenbert Spælt egg á toppinn, franskar og bbq sósa…mmm
BBQ kjúklingasalat með camenbert og bláberjum
Þetta salat er létt, brasað og rosalega bragðgott. Kjúklingur:3 kjúklingabringur1 eggRaspurBBQ kryddSalt og piparHvítlaukssalt Bringurnar eru skornar í jafna bita, velt upp úr eggi og síðan úr raspblöndu (kryddunum blandað saman við). Sett í olíusmurt eldfast mót og bakað í ca 50 mín. Salat:SpínatGul paprikaBláberRauðlaukurCamenbertBBQ-smurt stökkt bacon Baconið er skolað með vatni og síðan smurt…
Hnetusmjörs og kakó pönnukökur með bönunum
Smá sunnudagsbras Tvenns konar pönnukökur, annars vegar með hnetusmjöri og svo með kakói. Grunndeigið er svona:1 bolli mjólk1 bolli hveitismá bráðið smjörsmá saltvanilludroparhálf tsk lyftiduft Síðan er deiginu skipt upp og annars vegar sett ein msk hnetusmjör og hins vegar 1 msk kakó. Bananar, sýróp og Reese´s Pieces ofan á. Stórkostlegt! Sérstaklega með stökku beikoni.
Smá-pizzur með gúmmelaði
Í suðurríkjum Bandaríkjana er þekktur réttur sem inniheldur steikta tómata, grillað eggaldin, mozzarella ost og ferskt basil. Ég tók smá snúning á þessu og gerði smá-pizzur. Ég gerði venjulegt pizzadeig og rúllaði út, skar það út í litla hringi, ég ákvað síðan að hafa tvær tegundir í gangi, annars vegar: Basil pestóPiparostMozzarellaSteikta tómata og…
Steiktir stórir tómatar
Suðurríkja eldamennska heillar mig, þar kunna menn að brasa. Alveg síðan ég sá Fried Green Tomatoes myndina þá hefur mig langað til að prófa þetta og lét verða af því. Grænir tómatar eru reyndar vandfundnir á þessum árstíma en ég fann stóra og góða tómata í Nóatúni, skar þá gróft og setti í deig. InnihaldTómatarOlíaEggHveitiHvítlauksduftÞurrkað…
Sætar kartöflur með lakkrís-salti, pecan hnetum, döðlum og anís-kryddi
Ég er rosa hrifinn af sætum kartöflum. Þetta finnst mér topp stöff, þetta eru sætar kartöflur bakaðar í olíu með pecan-hnetum, döðlum, lakkrís salti frá Saltverki og anís kryddi. Bragðast rosa vel, sérstaklega með smá spínati, létt, sætt og gott.
