Einfaldur og fljótlegur forréttur. Ferskur aspas vafinn í parmesan og parmaskinku. Byrja á því að setja aspasinn í eldfast mót og í ofn við 200°c í ca 7 mín, hella þá einum bolla af vatni í mótið og krydda með salti og pipar, baka í ca 5 mín í viðbót eða þangað til hann er orðinn fallega…
Flokkur: Töddi brasar
Allt brasað og fínt
BBQ-pizzan ógurlega!
Þessi tekur dáldin tíma í undirbúningi. Pizza með heimatilbúinni bbq-sósu, kjötbollum, bacon, rauðlauk og gulum baunum. Ég gerði botninn frá grunni: 4 dl hveiti 3 dl heilhveiti 1 pakki þurrger 2 dl heitt vatn 2 dl bjór 1 msk ólívuolía 2 msk hunang 1 tsk salt Í kjötbollurnar setti ég mulið Ritz-kex, blaðlaukssúpu, ferskt basil,…
Pestó kjúklingur
Rikku-innspíraður pestó-kjúklingur. Innihald: Kjúklingabringur (skornar í grófa bita) Rautt pestó Rjómaostur Mozzarella kúla Cherry-tómatar Salt og pipar Þurkað basil Aðferð: Hræri saman pestó og rjómaosti og set eldfast mót, kjúklingur þar ofan á og meira pestó mix, skera mozzarella kúluna í bita og cherry-tómatana í ca 4 bita og strá öllu yfir, krydda með salti…
Mexíkósk kjúklingasúpa
Mexíkósk kjúklingasúpa fyrir kvefaða. Innihald: Tómatdjús Tómatpúree Tómatar í bitum (dós) Laukur (steikt í smjöri) Hvítlaukur Gulrætur Chilli (mikið) Sellerý Kraft-teningur (kjúklinga) Paprika Kúmen Kóríander Kjúklingabringur steiktar (kryddaðar með sterku kryddi, ég notaði Jamaican Jerk) Sweet chilli Doritos Sýrður rjómi Rifinn ostur Malla vel saman, setja kjúklinginn útí síðustu 10 mínúturnar. Servera með Doritos, sýrður rjóma…
Sir Wellington…Beef Wellington
Ég var rosalega stressaður fyrir þessu. Búinn að lesa mikið og horfa á marga Youtube-þætti um Wellington steikur, það er auðvelt að klúðra þessu. Fór í Kjöthöllina og keypti nautalund (sem inniheldur líklegast demantaryk miðað viðverðið á henni). Byrjaði á því að brúna lundina á öllum hliðum og kældi svo niður til að stífa hana…
Svikin humarsúpa
Svikin humarsúpa brasarans. Frábær gulróta/engifer/cashew súpa (fæst í Kosti) hituð og bragðbætt með hvítlauk, chilli og svörtum pipar. Beikonvafðar döðlur (svikinn humar) grillaðar í Formann, bætt útí. Með þessu var ristað brauð með Jóla-osti, beikon og Honey mustard sósu. Obboslega gott bras. Einkunn: 8,5
Fylltar grísalundir…taka2
Ég hef áður fjallað um fylltar grísalundir. Þá notaði ég græn epli og döðlur. Að þessu sinni langaði mig að taka þetta á næsta level…og vefja því inn í bacon. Byrjaði á því að snyrta lundirnar vel þeas fjarlæga fitu og sinar, síðan skar ég í hana miðja og flatti út. Ég var með tvenns…
Slutty Brownies!
Internetið er undratól, þar lærði ég um lystisemdir þess að skeyta saman ýmsum réttum. Um helgar finnst mér gaman að baka og ég fann á netinu concept sem heitir Slutty Brownies. Basically þá þýðir það að skeyta saman brownies-köku, blondie-köku og Oreo kexi. Svona segir internetið að þær eigi að líta út: Hér er mitt…
Kakó sem rífur í
Í hausthörkum og Airwaves hugleiðingum er fátt betra en að útbúa rjúkandi gott kakó. Ég notaði: Banoffee kakó 70% súkkulaði Smjör Chilli-duft Salt Kanil Vanillusykur Gúrmei!
Cannelloni Lasagne
Tómas Hermannsson sálfræðingur og Laugarness-barón benti mér á þennan einfalda rétt. Innihald: Skinka Lasagne plötur Ostur —————- Tómatmauk Pastasósa Laukur Chilli Hvítlaukur Agave sýróp Basil Krydd —————— Gratín-ostur ——————- Ég fór í Pylsumeistarann á Laugalæk og náði mér í gúrmei hunangsskinku sem ég notaði í réttinn. Maður byrjar á því að leggja lasagne plötur í…
