Sigurður Guðmundsson vinur minn, stjörnulögmaður og vínsérfræðingur býður mér stundum í mat, hann elskar lífsins lystisemdir og kallar þetta óhollustu samloku í heimi. Ég var heillaður af einfaldleikanum, óhollustunni og nautnafíkninni. Innihaldið í þessari dásemd er einfaldlega: Bacon-pylsur Bearnaise-sósa Baguette brauð ….ekkert annað. Pylsurnar eru steiktar á pönnu og skornar í litla bita, sósunni er…
Author: Töddi brasar
Skonsur með súkkulaðibitum
Ég hef löngum verið á Jóa Fel vagninum, bókin hans Brauð og kökubók Hagkaups er dásamlegur grunnur að góðum gúrmei bakstri. Mér finnst samt það einmitt vera það…góður grunnur. Hann er t.d. með ágætis uppskrift að muffins þar sem ég hef ítrekað túlkað, djúsað upp og prófað mig áfram með. Ég rakst síðan á skonsu…
Rolo-brownies
Ég skellti mér í berjamó um daginn og ákvað að það væri nú sérdeilis góð hugmynd að kippa einhverju kruðeríi með til að maula á. Ég leitaði að uppskriftum á internetinu að sniðugum brownies-uppskriftum, ég skrifað áður um blæti mitt á brownies-kökum, sjá hér: https://toddibrasar.wordpress.com/2012/11/04/slutty-brownies/ Ég fann ágætis grunnuppskrift á netinu og ákvað að bæta…
Rabarbarasulta með kanil og anis
Hey, Töddi brasar síðan er tveggja ára í dag! Avúúhúú!! Af því tilefni skellti ég í ævintýragjarna rabarbarasultu með kanil og anis. Hérna er uppskriftin: 500gr rabarbari (skorinn og skolaður)400 gr sykur1 dl vatn2 tsk kanill2 tsk anisduft Suðunni náð upp á miklum hita og svo látið malla í ca 40 mínútur, mér finnst…
Baconvafinn rabarbari
Nei þetta eru ekki baconvafðar pylsur, heldur baconvafinn rabarbari. Rabarabara seasonið er gengið í garð og þess vegna tilvalið að gera tilraunir…rabarbarbari, það er gaman að segja rabarbarbarbarbarbari. Ég valdi vel rauða stöngla, skar í hæfilega bita og lét liggja í hunangi í smástund, skar smá rendur í stönglana svo að hunangið næði í…
Sumarsalat og fylltar brauðstangir
Áður en þú lest þessa færslu þarftu að átta þig á að ég lofaði aldrei að vera með heilsublogg….jafnvel þó eitthvað sé kallað salat, gæti það og inniheldur líklega fleiri kaloríur en flestar steikur. Svo, það eru margir matgæðingar í fjölskyldunni minni, bróðir minn gerir rosalegar kjötsúpur, faðir er tilraunagjarn og hefur fullkomnað krókódílasteikina, móðir…
Fylltar beikondöðlur
Ferskar döðlur eiga hug minn allann. Ég prófaði mig áfram með fjórar útfærslur á þessu vinsæla kokteilboðssnarli. Þar sem döðlurnar eru ferskar eru þær extra mjúkar og því vil ég gjarnan hafa eitthvað crunchy með, ég tek steininn úr og nota þær hálfar í hvern bita, ég nota svo hálfa sneið af beikoni í hvern…
Kjúklingatagliatelle með döðlum
Ég er nýkominn úr ferðalagi sem ég segi ykkur frá síðar, þar komst ég að ýmsu en ein uppgvötun fannst mér merkileg. Bretar nota næstum alltaf döðlur þegar þeir gera salat, alla vega þeir á Pret-A-Manger sem er svona lífræn kaffihúsakeðja sem selur hollustusalöt og samlokur sem eru líklegast framleiddar á himnum. Ég hef sjálfur…
Útilegusnarl við Ódáðahraun…
…ok kannski ekki við Ódáðahraun en þetta snarl er mega-einfalt en frábært sem eftirréttur eftir vel heppnaða grillveislu í útilegunni. Þetta er einfaldlega Grahams Haust kex, Nutella og sykurpúðar, sett í samloku og grillað þar til kexið rétt tekur lit og súkkulaðið fer að leka. Það er líklegast best að vera með töng á þessu…
Oreo- og Nizza ostakaka
Goðsagnirnar eru sannar! Ég frétti frá öðrum matgæðingi að hægt væri að búa til flauelsmjúka ostaköku úr Oreo og Nutella, ég hugsaði að þetta væri of gott til að vera satt og ákvað að prófa. Ég notaði hins vegar ekki original Nutella heldur nýtt heslihnetusúkkulaðismjör frá Nóa Sírius, Nizza. Þó mér finnist notkunin á Z-unni…
