Eldhúsið – musterið

Mér þykir afar vænt um eldhúsið mitt. Ég flutti inn á Leifsgötu núna í janúar síðastliðnum og er með svo frábæran leigusala að hún gaf mér alveg frítt spil varðandi hvað ég mætti gera við eldhúsið. Það er búið upprunalegri innréttingu frá því í kringum 1950 sem mér finnst mjög sjarmerandi, fullt af skápum og…

Kartöflusalat með mexíkósku yfirbragði

Gott kartöflusalat getur bjargað öllu. Mamma gerir besta kartöflusalat sem ég hef smakkað, við erum að tala um majónes, egg, kartöflur, rauðlauk, steinselju og sitt hvað fleira. Ég er alltaf að reyna setja mitt tvist á kartöflusalatið. Ég er mikill aðdáandi sætu kartöflunnar. Sæt kartafla með Smoky Barbecue Aioli frá Stonewall er frábær blanda. Ég…

Nautafile í trufflu- og hnetumarineringu

Ég er nýfluttur í nýja íbúð, það var eitt aðalatriðið þegar ég var að skoða íbúðir að eldhúsið væri huggulegt, að það væri hægt að vinna með það, ég var nýbúinn að sjá Star Wars: The Force Awakens þegar ég kíkti á þessa og myndin varð mér innblástur að litum og uppsetningu, en meira um…

Fylltar sætar kartöflur

Ég er alveg rosalegur meðlætismaður, hef það líkegast frá föður mínum, þegar hann heldur matarboð, jafnvel þó hann sé með eitthvað ofur einfalt þá er borðið alltaf drekkhlaðið af alls konar meðlæti, sem eitt og sér væri jafnvel nóg sem heil máltíð. Sætar kartöflur eiga að vera meinhollar en ég get lofað ykkur að það…

Möndlukaka með Lemon Curd

Lífið þarf ekki alltaf að vera svo flókið. Ég á góðar æskuminningar tengdar því að sitja með föður mínum við eldhúsborðið heima, við fáum okkur möndluköku, ég með mjólk og hann með kaffi. Hann skar alltaf sneiðarnar í litla teninga sem pössuðu uppí mann og leysti þar með mylsnuvesenið. Í Kjöt og fisk búðinni, sem…

Hægeldað nautafille

Fátt er fallegra á veisluborði en rétt eldað nautafille. Um áramótin vorum við stórfjölskyldan með Pálínuboð þar sem allir komu með eitthvað á borðið. Ég kom með hægeldað nautafille. Það er mjög mikilvægt við eldun mjúkra nautavöðva að þeir séu við stofuhita þegar þeir eru eldaðir, þá dragast þeir síður saman og verða síður seigir….

Ribeye-roast á beini

  Mér finnst gaman að vinna með nautakjöt, eftir að ég fór að vinna í Kjöt og fisk á Bergstaðastræti hef ég lært alveg ótrúlega mikið um alls konar kjöt…og fisk. Við erum ekki margir að vinna þar en við eigum þó sameiginlegt að hafa gríðarlegan mataráhuga og það ríkir einhver óútskýranleg gagnkvæm virð Þó…

Puttamatur? Fingrafóður?

Puttamatur! Ég hugsa alltaf um Gúlliver í Putalandi þegar ég heyri einhvern segja…Puttamatur, það er líka erfitt að segja puttamatur án þess að beinlínis hrópa það….PUTTAMATUR!. Reyndar er puttamatur mjög ósjarmerandi orð, fingrafóður er jafnvel enn verra. Pylsur í teppi og beikonvafðar döðlur teljast samt varla sem forréttur þannig að eitthvað þarf maður að nefna…

Súkkulaðikvartett

Súkkulaðikvartett-kökur Hvernig kemur maður fjórum tegundum af súkkulaði í eina uppskrift án þess að því sé ofgert? Svarið fæst með þessum dásamlegu kökum. Það er í raun mjög erfitt að halda sig frá þessu deigi, það væri hægt að bera það fram með t.d. vanilluís óbakað. Saltið dregur fram það besta í súkkulaðinu og Nutella…

Teriyaki steikarsamloka

Laugardagskvöld, steikarsamloka, fer vel saman. Ég notaði nauta framfillet og marineraði það í Sesam Ginger Teryiaki sósu frá Stonewall Kitchen, smá salt og pipar. Kjötið er steikt á pönnu í ólívuolíu og sett svo í ofn við 150°C þar til kjarnhitinn nær 60°C, tekið út og látið jafna sig í ca 15 mínútur, svo er…